Ægissíða 8

610 Grenivík
2
1
3
85 m²
37.900.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
  • Stærð 85 fm
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1948
  • Brunabótamat 45.800.000
  • Fasteignamat 29.800.000

Kasa fasteignir 461-2010.

Ægissíða 8, Grenivík - Snyrtilegt 85,9 fm 3 herbergja einbýlishús með verönd, heitum potti og stórum garði á einstökum útsýnisstað við sjávarsíðuna á Grenivík. 

Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, búr, baðherbergi, tvö svefnherbergi, þvottahús og geymslu.


Gengið er inn í forstofu á suður-hlið hússins. Þar eru flísar á gólfi og opið fatahengi. 
Stofa og hol eru með parket á gólfum. 
Baðherbergi var endurnýjað fyrir 2-3 árum. Þar eru flísar á gólfum, hvít innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og sturtuklefi. Af baðherberginu er útgengt útá verönd með heitum potti.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parket á gólfum. Í hjónaherbergi er innbyggður fataskápur.
Eldhús er með parket á gólfi. Þar er rúmgóð innrétting með plássi fyrir uppþvottavél. Hvítar flísar eru á milli skápa. 
Inn af eldhúsi er búr. Þar eru flísar á gólfi og opnanlegur gluggi. 
Þvottahús er mjög rúmgott. Þar eru flísar á gólfi og þaðan er útgengt út á nýlega steypt bílaplan með snjóbræðslukerfi. 
Inn af þvottahúsi er geymsla með flísum á gólfi.

-Geymsluskúr á lóð 
-Frábær staðsetning við sjávarsíðuna

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna núverandi skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.

Ægissíða 8, 610 Grenivík

Senda fyrirspurn um eignina