Tjarnarlundur 9F
600 Akureyri
2
1
3
80 m²
-
Tegund Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
-
Stærð 80 fm
-
Herbergi 3
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 2
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sameig.
-
Byggingaár 1973
-
Brunabótamat 42.400.000
-
Fasteignamat 43.850.000
Kasa fasteignir 461-2010.
Tjarnarlundur 9F - Björt og vel skipulögð 3 herbergja 80,5 fm enda-íbúð á 3. hæð í góðu fjölbýlishúsi á Brekkunni.
Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, þvottahús/geymslu, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Einnig fylgir eigninni sérgeymsla á jarðhæð.
Forstofa er með flísum á gólfi, opnu fatahengi og efri skápum.
Eldhús er með plastparketi á gólfi. Þar er hvít, sprautulökkuð innrétting með dökkum flísum á milli bekkja og ljósri bekkjarplötu. Lítill borðkrókur er undir glugga til suðurs.
Stofa og hol eru í opnu og björtu rými með plastparketi á gólfum. Úr stofu er gengið út á svalir til vesturs.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með ljósu plastparketi á gólfum. Í hjónaherbergi er rúmgóður fataskápur.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja. Þar er hvít innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og sturtuklefi.
Þvottahús/geymsla er innaf eldhúsi. Þar er dúkur á gólfi, skolvaskur, hillur og opnanlegur gluggi. Pláss er fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Sér-geymsla skráð 4,6 m² er á jarðhæðinni. Þar er lakkað gólf og hillur.
- Gluggar gler og svalahurð hafa nýlega verið endurnýjuð
- Húsið var málað og múrviðgert að utan sumarið 2020
- Nýtt teppi í stigagangi árið 2026
- Sameiginleg hjólageymsla er í sameign
- Frábær staðsetning, rétt við leik- og grunnskóla og íþróttasvæði KA
- Stutt í verslanir og ýmsa þjónustu
Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]
------------
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna núverandi skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.