Skottugil 1 101

603 Akureyri
3
1
4
87 m²
64.900.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
  • Stærð 87 fm
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 2003
  • Brunabótamat 44.450.000
  • Fasteignamat 56.450.000

Kasa fasteignir 461-2010.

Skottugil 1 – 101. Björt og vel skipulögð 3–4 herbergja íbúð á jarðhæð í fjórbýli á góðum stað í Giljahverfinu. Úr stofu er gengið út á verönd til suðvesturs.

Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, geymslu sem nýtt er sem svefnherbergi og baðherbergi.


Forstofa er flísalögð með góðum fataskáp.
Eldhús er með U-laga innréttingu og góðu bekkjarplássi. Flísar eru á milli efri og neðri skápa og stæði fyrir uppþvottavél. Parket er á gólfi.
Stofa er björt með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á steypta verönd með timburskjólveggjum sem snýr til suðvesturs.
Baðherbergi er með ljósum flísum á gólfi og við baðkar og vask. Þar er góð innrétting með skápum og handklæðaofn.
Svefnherbergi eru tvö, bæði með fataskápum og parketi á gólfum.
Geymsla innan íbúðar er nýtt sem svefnherbergi og er með fataskáp og parketi á gólfi.
Þvottahús er með flísum á gólfi, góðri innréttingu með vaski og stæði fyrir þvottavél og þurrkara.

- Nýlega skipt um innihurðar ( nema á þvottahúsi )
- Parket var endurnýjað árið 2022.
- Sér afnotaflötur fylgir íbúðinni.
- Sameiginleg geymsla er undir stiga.
- Stutt er í leik- og grunnskóla.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna núverandi skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.

Skottugil 1 101, 603 Akureyri

Senda fyrirspurn um eignina