Seljahlíð 1 A

603 Akureyri
3
1
4
86 m²
65.500.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Raðhús/ Raðhús á einni hæð
  • Stærð 86 fm
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1976
  • Brunabótamat 52.250.000
  • Fasteignamat 59.350.000

Kasa fasteignir 461-2010.

Seljahlíð 1 A - Góð og vel skipulögð 4 herbergja 86,8 fm raðhúsaíbúð á einni hæð í Glerárhverfi.

Eignin skiptist í forstofu, þvottahús/geymslu, hol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, stofu og eldhús. Úr stofu er gengið út á hellulagða suður verönd með timbur skjólveggjum.


Forstofa er teppalögð með grófum skipadregli. Þar eru opin fatahengi.
Þvottahús/geymsla er innaf forstofu. Þar er opnanlegur gluggi, skolvaskur og stæði fyrir þvottavél. Í þvottahúsinu er einnig lúga uppá geymsluloft sem er yfir hluta íbúðarinnar. 
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfum. Í hjónaherbergi og öðru barnaherbergjanna eru nýlegir skápar, en í barnaherberginu innaf forstofunni er laus skápur sem fylgir líka með eigninni við sölu.
Baðherbergi var gert upp árið 2018. Þar eru flísar á gólfi og hluta veggja, hvít innrétting, upphengt salerni, sturta með gler-skilrúmi og handklæðaofn. Hiti er í gólfi á baðherberginu.
Hol, stofa, og eldhús eru í björtu og opnu rými með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á hellulagða suður verönd með timbur skjólveggjum. Í eldhúsi er nokkuð rúmgóð, ljós innrétting með plássi fyrir uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð.

-Geymsluskúr á lóð.
-Skipt var um þak á húsinu 2020.
-Skipt var um gler í suður-gluggum 2021.
-Góð staðsetning í barnvænu hverfi.
-Stutt í leik- og grunnskóla.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna núverandi skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.

Seljahlíð 1 A, 603 Akureyri

Senda fyrirspurn um eignina