Hvannavellir 10

600 Akureyri
0
0
0
527 m²
135.000.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Atvinnuhús/ Verslunarhúsnæði
  • Stærð 527 fm
  • Herbergi 0
  • Stofur 0
  • Svefnherbergi 0
  • Baðherbergi 0
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1960
  • Brunabótamat 272.200.000
  • Fasteignamat 131.800.000

Kasa fasteignir 461-2010.

Hvannavellir 10 - Um er að ræða atvinnuhúsnæði á frábærum stað miðsvæðis á Akureyri. Eignin sem er skráð 527.1 fm skiptist í tvo matshluta, annarsvegar 359,9 samkomusal og hinsvegar 167,2 fm íbúðarhluta. Búið er að hreinsa allt út úr íbúðarhlutanum og hægt væri að byggja hann upp aftur sem íbúð.

Komið er inn í forstofu, Hvannavallamegin, þar eru flísar á gólfi. Snyrtingar eru á hægri hönd einnig flísalagðar. Eldhús er á vinstri hönd úr forstofu.  Úr eldhús sem og úr forstofu er gengið í sal þar er lofthæð meiri og sena í suðurhluta. Í norðurhluta er minni salur þar er lofthæð minni. Innaf salnum eru geymslur-bæði í suðurhluta og innaf minni sal.  Baklægt í húsnæðinu eru tvær skrifstofur auk stigauppgöngu á efri hæð en á efri hæðinni eru tvö herbergi. Í austur og suðurhluta var áður íbúð en nú hefur allt verið hreinsað þar út og bíður uppbyggingar. 

Árið 2023 var deiliskipulagi á svæðinu breytt og samþykkt var uppbyggingu á lóðinni fyrir fjölbýlishús með bílakjallara.
Búið er að teikna á lóðina 4 hæða blokk með 17 íbúðum og bílakjallara. Þær teikningar fylgja með við sölu.


- Bæði eignin og svæðið bjóða upp á mikla möguleika til uppbyggingar, hvort sem það er í húsinu sem nú stendur eða með nýju verkefni.
- Athugið að lítil sem engin starfsemi hefur verið í húsinu í nokkur ár og er áhugasömum aðilum bent að á að skoða eignina vel.
- Þrívíddar teikningar í auglýsingunni eru aðeins til að gefa hugmynd af uppbyggingu.
- Fyrirhugað fasteignamat 2027: 138.000.000.-

Allar nánari upplýsingar veitir Helgi Steinar á [email protected] eða í síma 666-0999

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Hvannavellir 10, 600 Akureyri

Senda fyrirspurn um eignina