Huldugil 57

603 Akureyri
3
1
4
104 m²
83.500.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Raðhús/ Raðhús á einni hæð
  • Stærð 104 fm
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1994
  • Brunabótamat 67.700.000
  • Fasteignamat 73.350.000

Kasa fasteignir 461-2010.

Huldugil 57 - Vel skipulögð 4 herbergja 104,5 fm íbúð í raðhúsi á vinsælum stað í Giljahverfi. Eignin hefur fengið gott viðhald í gegnum árin.

Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, stofu, eldhús, baðherbergi, 3 svefnherbergi og sjónvarpshol ásamt verönd til vesturs og 15 fm geymsluskúr.


Forstofa og þvottahús: Voru gerð upp fyrir nokkrum árum. Rýmið var opnað, sett var upp innrétting í þvottahús með plássi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt kæliskáp. Rýmið er allt flísalagt og er góður fataskápur í forstofu. Gólfhiti er í rýminu.
Eldhús: Er opið með rúmgóðri innréttingu með góðu skápa og skúffuplássi. Pláss er fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu. Bakaraofn er í vinnuhæð.
Stofa: Er í opnu rými með eldhúsi. Þar er parket á gólfum. Gengið er út á steypta verönd úr stofu. 
Baðherbergi: Var gert upp fyrir nokkrum árum. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. Hvít innrétting með skúffum ásamt efriskápum og vaski í borðplötu. Innangeng sturta, vegghengt salerni og handklæðaofn. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu.
Svefnherbergi: Eru 3 innan eignar, öll með parketi á gólfum, fataskápur er í tveim þeirra.
Sjónvarpshol: Er við enda gangs, þar er parket á gólfum.
Geymsluskúr: Á lóðinni er einangraður nýlegur 15 fm geymsluskúr með rafmagni.

- Vestur verönd er úr timbri með timbur skjólveggjum.
- Verönd fyrir framan skúr er steypt.
- Sameiginlegt leiksvæði er fyrir framan hús.
- Ljósleiðari kominn inn og tengdur.
- Eigin er laus til afhendingar í haust.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Huldugil 57, 603 Akureyri

Senda fyrirspurn um eignina