Vallartún 8 101

600 Akureyri
3
1
4
110 m²
79.900.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
  • Stærð 110 fm
  • Herbergi 4
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 2005
  • Brunabótamat 58.700.000
  • Fasteignamat 66.000.000

Kasa fasteignir 461-2010.

Vallartún 8 íbúð 101 - Björt og falleg 4 herbergja 110,4 fm íbúð á neðri hæð í fjórbýli sunnanlega í Naustahverfi.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og þvottahús. Eitt svefnherbergjanna er skráð sem geymsla á teikningum.


Forstofa er með svörtum nátturusteinn á gólfi og tvöföldum skáp og skúffueiningu. 
Eldhús, spónlögð eikar innrétting með flísum á milli skápa og stór eyja með helluborði. Gert er ráð fyrir að setið sé við eyju.
Stofa og eldhús eru í opnu rými með svörtum náttúrusteini á gólfi. Úr stofu er gengið út á steypta verönd. Bjart rými með stórum gluggum.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með eikar parketi á gólfi og fataskápum. Í hjónaherbergi er rúmgóður sexfaldur fataskápur.
Baðherbergi Þar er svartur náttúrusteinn á gólfi og ljósar flísar á veggjum, eikar innrétting og handklæðaskápur, wc og sturtuklefi.
Þvottahús er með svörtum náttúrusteinn á gólfi, hvít innrétting og hurð út til suðurs á steypta stétt.
Geymsla er innréttuð sem þriðja svefnherbergið, parket á gólfi og fataskápur.

- Sameiginleg geymsla.
- Búið er að taka inn ljósleiðara
- Rúmgóður vestur sólpallur 

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Vallartún 8 101, 600 Akureyri

Senda fyrirspurn um eignina