Ásatún 26
600 Akureyri
3
1
4
109 m²
-
Tegund Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
-
Stærð 109 fm
-
Herbergi 4
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 3
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sér
-
Byggingaár 2014
-
Lyfta Já
-
Brunabótamat 66.950.000
-
Fasteignamat 67.900.000
Kasa fasteignir 461-2010.
Ásatún 26, íbúð 301 - Falleg og vel skipulögð 4 herbergja 109,9 fm íbúð á efstu hæð í þriggja hæða fjölbýlishúsi með lyftu á góðum stað í Naustahverfi. Lyftan opnast beint inn í rúmgóða forstofu sem er tilgreind sem svalir með svalalokun og er 25,4 fm.
Eignin skiptist í fostofusvalir, forstofu, hol, 3 svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, eldhús, stofu og geymslu innan íbúðar.
Forstofusvalir eru flísalagðar og þar er hiti í gólfum. Gengið er inn í rýmið beint úr lyftu og þaðan inn í forstofu íbúðarinnar, en aðeins er hægt að komast upp á hæðina með lykli eða í gegnum dyrasíma. Við hlið lyftu er læst stigahús. Úr rýminu er mjög gott útsýni í Norður.
í forstofu eru flísar á gólfi og gott skápapláss.
Svefnherbergin eru þrjú, öll rúmgóð með flísum á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Það eru ljósar innréttingar, sturta með gler-skilrúmi, upphengt salerni, handklæðaofn og opnanlegur gluggi. Á einum vegg er sér-innrétting fyrir þvottavél og þurrkara auk skolvasks.
Stofa og eldhús eru í opnu rými með flísum á gólfi. Ljós innrétting er í eldhúsi með innfelldri lýsingu og bakaraofni í vinnuhæð, en þar er einnig eldhúseyja með helluborði. Úr eldhúsi er útgengt út á góðar suðursvalir.
Geymsla er innan íbúðar og þar eru flísar á gólfi.
-Snyrtileg, hellulögð sameign er á neðstu hæð
-Sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur
-Sameiginleg geymsla er undir stiga í lagnarými
-Hiti er í stétt að sorpskýli og fyrir framan hús
-Sér-merkt bílastæði
-Stutt í verslun og leik- og grunnskóla
Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]
------------
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.