Espilundur 19

600 Akureyri
4
2
5
210 m²
124.900.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
  • Stærð 210 fm
  • Herbergi 5
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 4
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1969
  • Brunabótamat 110.850.000
  • Fasteignamat 113.200.000
Opið hús: 11. febrúar 2026 kl. 16:15 til 17:00.

Opið hús: Espilundur 19, 600 Akureyri. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 11. febrúar 2026 milli kl. 16:15 og kl. 17:00.

Kasa fasteignir 461-2010

Espilundur 19, 600 Akureyri. Fallegt og nokkuð uppgert 5 herbergja 210,7 fm einbýlishús á einni hæð á Brekkunni.

Eignin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu/hol, sólstofu, eldhús, tvö baðherbergi, 4 svefnherbergi, þvottahús og bílskúr ásamt tveimur sólpöllum. Fallegur gróinn garður er í kringum eignina.


Forstofa er parketlögð með opnu fatahengi.
Hol, stofa og borðstofa mynda stórt og bjart rými með stórum gluggum og parketi á gólfum. Úr holi er gengið í Sólskála og þaðan út á timburverönd til suðurs.
Eldhús var endurnýjað fyrir nokkrum árum á smekklegan hátt. Það er flísalagt með hita í gólfum. Innrétting er rúmgóð og hurðir úr eik og hvít-sprautaðar. Spanhella, tvöfaldur ískápur og lítið eldhúsborð.
Innaf eldhúsi er stórt hjónaherbergi með góðum skáp, parketi og hita í gólfum.
Herbergisgangur er parketlagður.
Baðherbergi á herbergisgang er með flísum á gólfi, skáp með vaski, baðkari og salerni. Opnanlegur gluggi er að baðherbergi.
Herbergi eru þrjú á ganginum, öll með parketi á gólfum. Stór fataskápur er í einu herberginu.
Þvottahús er inn af eldhúsi. Þar eru flísar á gólfi og rúmgóð innrétting með skolvask.
Bakinnganga er flísalögð og inn af gangi þar er snyrting með sturtu. Þar fyrir utan er lokuð verönd og heitur pottur.
Bílskúr er tvöfaldur og rúmgóður.

- Möguleiki á að gera herbergi í bílskúr og part af stofu.
- Varmaskiptir er á neysluvatni og ofnakerfi.
- Snjóbræðsla er í hluta af bílaplani og stétt
- Garðskúr er á baklóð.
- Vel staðsett hús í grónu hverfi, stutt í skóla og verslun.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Espilundur 19, 600 Akureyri

Senda fyrirspurn um eignina