Hafnarstræti 26B 204

600 Akureyri
2
2
3
93 m²
71.900.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
  • Stærð 93 fm
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 2019
  • Brunabótamat 53.000.000
  • Fasteignamat 64.300.000

Kasa fasteignir 461-2010.

Hafnarstræti 26 B - 204. Falleg 3 herbergja 93,3 fm íbúð á tveimur hæðum rétt við miðbæ Akureyrar. 

Eignin skiptist þannig að á neðri hæð íbúðarinnar er forstofa, hjónaherbergi, svefnherbergi og snyrting.
Á efri hæð er eldhús og stofa ásamt baðherbergi með þvottaaðstöðu.
Tvennar svalir eru á íbúðinni til austurs, annars vegar út úr hjónaherbergi á neðri hæð og hins vegar út úr alrými á efri hæðar.


Neðri hæð: 
Forstofa: Er með tvöföldum fataskáp. Sérinngangur af stigapalli.
Hjónherbergi: Þar er vínylparket á gólfum og rúmgóður fataskápur. Gengið er út á austur svalir úr herberginu.
Svefnherbergi: Er vínylparket á gólfum og einföldum fataskáp.
Salerni: Er með flísum á gólfi, ljós innrétting og upphengt salerni. 

Efri hæð:
Stofa / sjónvarpsrými: Þar er góð lofthæð, vínylparket á gólfum, gengið er út á austur svalir úr því rými. Gott útsýni yfir pollinn.
Eldhús: Innrétting er með hvítsprautuðum neðri skápum en hnotu í efri skápum. Eldhúsið er fullbúið tækjum, uppþvottavél og ísskáp. Stálvaskur er fræstur í borðplötu. Steinn í borðplötu.
Baðherbergi: Er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf, innrétting, upphengt salerni og sturta, innrétting er fyrir þvottavél og þurrkara er inn af baðherbergi.

Geymslur: Sér geymsla eru í sameign ásamt sameiginlegum geymsluskúr á lóð.

- Skipulagi var breytt frá upphaflegum teikningum og eldhús sett upp og herbergi niður í staðinn.
- Frábær staðsetning, rétt við miðbæ Akureyrar.
- Mikil lofthæð á efrihæð.
- Fallegt útsýni yfir pollinn.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Hafnarstræti 26B 204, 600 Akureyri

Senda fyrirspurn um eignina