Bjarkarlundur 3

600 Akureyri
2
1
3
91 m²
63.500.000 kr.
Til baka Deila
  • Tegund Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
  • Stærð 91 fm
  • Herbergi 3
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 2004
  • Brunabótamat 46.350.000
  • Fasteignamat 57.350.000

Kasa fasteignir 461-2010.

Bjarkarlundur 3 íbúð 201. Björt og vel skipulögð 3 herbergja 91 fm íbúð á efri hæð í fjórbýlishúsi í Lundarhverfi á Akureyri. 
Eignin laus 01.03.2026

Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, þvottahús, 2 svefnherbergi og rúmgóða geymslu. Geymslan er með glugga og gæti því nýst sem þriðja svefnherbergið/skrifstofa.


Forstofa: Flísar á gólfi, rúmgóður fataskápur með skúffum.
Stofa: Rúmgott rými sem nýtist sem stofa og borðstofa. Parket á gólfum. Gengið er út á nokkuð stórar svalir úr stofu. 
Eldhús: Eikar innrétting með plássi fyrir ísskáp og uppþvottavél. Bakaraofn í vinnuhæð. Flísar á gólfi og á milli skápa.
Baðherbergi: Eikar innrétting með skúffum og skápum. Baðkar með sturtutækjum, salerni og handklæða ofn. Flísalagt í hólf og gólf.
Svefnherbergi: Eru tvö, bæði með parketi á gólfum og rúmgóðum fataskápum.
Þvottahús: Hvít innrétting með plássi fyrir þvottavél og þurrkara. Bekkjarplata með vaski. Flísar á gólfi og hluta af veggjum.
Geymsla: Flísar á gólfum og hillur á veggjum. Gluggi er á geymslunni og gæti hún því nýst sem herbergi eða skrifstofa.

- Fallegt útsýni er úr eigninni.
- Matvöruverslun í göngufæri.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Bjarkarlundur 3, 600 Akureyri

Senda fyrirspurn um eignina