Kasa fasteignir 461-2010.Goðanes 8-10 bil merkt 122. Gott atvinnuhúsnæði skráð 79,6 fm að gólffleti ásamt óskráðs millilofts með eldhúsinnréttingu. Húsið er með steyptum milliveggjum.
Salurinn er 79,6 m2 þar eru flísar á gólfi, gönguhurð og stór rafdrifinn hurð, góð lýsing.
Timbur stigi er upp á milliloft en þar er góð eldhúsinnrétting með ágætu skápa og skúffuplássi ásamt vaski. Parket er á hæðinni.- Gott geymslurými 79,6 fm auk millilofts.
- Gólfflötur er c.a 11,5m á dýpt og 6,6m á breidd. ( Samkv. teikningu )
- Snyrting er flísalögð í hólf og gólf, lítil skápainnrétting með vaski og upphengt salerni.
- Góð innkeyrsluhurð með rafknúnum hurðaopnara, auk þess er gönguhurð. Innkeyrsluhurðin er 3,8m á breidd og 4,2m á hæð.
Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]------------Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.