Opið hús: 11. desember 2025 kl. 16:15 til 16:45.Opið hús: Drekagil 28, 603 Akureyri, Íbúð merkt: 01 00 01. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 11. desember 2025 milli kl. 16:15 og kl. 16:45.
Kasa fasteignir 461-2010. Drekagil 28 íbúð 001. Góð 2 herbergja 64,3 fm íbúð á jarðhæð í fjölbýli í Giljahverfinu. Eigninni fylgir sér geymsla og sameiginlegt þvottahús. Mjög gott aðgengi er að íbúðinni.
Forstofa er með dúk á gólfum og opnu fatahengi.
Eldhús er með dúk á gólfum. Þar er hvít eldhús innrétting og nýleg uppþvottavél.
Stofa er með eikarparketi á gólfum og frá stofu er aðgengi út á steyptan pall.
Herbergi er með dúk á gólfum. Þar er laus skápur sem fylgir með eigninni við sölu.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er baðkar með sturtutækjum og hvít innrétting. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi.
Geymsla með góðum hillum fylgir íbúð.
Sameiginlegt
Þvottaherbergi er á hæðinni.
- Góð staðsetning í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi.
- Gott aðgengi er í íbúðina frá bílastæði á jarðhæð.
- Stutt í leik- og grunnskóla sem og Háskólann.
- Áætlað fasteignamat árið 2026 er: 43.550.000 kr.
Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]------------Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.