Kasa fasteignir 461-2010.Skottugil 5 íbúð 201 - Vel skipulögð 3-4 herbergja 87.8 fm íbúð á efri hæð í fjórbýli í Giljahverfi.
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, baðherbergi, þrjú svefnherbergi (eitt skráð sem geymsla) og þvottahús auk þess er sér geymsluloft yfir íbúðinni.Forstofa: Flísar á gólfum og tvöfaldur skápur.
Eldhús: Ágæt innrétting með efri og neðriskápum, flísar á milli skápa. Pláss fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Parekt á gólfi.
Stofa: Opið og bjart rými með parketi á gólfium, gengið er út á suður svalir úr stofu.
Svefnherbergi: Eru þrjú, öll með parketi á gólfum og fataskápum. Eitt herbergjanna er skráð sem geymsla, en er nýtt sem svefnherbergi.
Baðherbergi: Flísar á gólfum og í kringum baðkar, góð innrétting, salerni og baðkar með sturtugleri og handklæðaofn.
Þvottahús: Flísar á gólfi, bekkur með vask og skápur einnig er opnanlegur gluggi. Farið er upp á geymsluloft úr þvottahúsi .
- Íbúðin er í leigu til 01.04.2026.
- Mikið geymslurými er yfir íbúðinni.
- Barnvænt hverfi, stutt í skóla og leikskóla.
- Svalir snúa í suður.
- Fasteignamat næsta árs verður 55.800.000.- Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]------------Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.