Kasa fasteignir 461-2010.
Davíðshagi 2 - íbúð 304. Stúdió íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsi með lyftu í Hagahverfi. Eignin er samtals 36,1 fm. og þar af er sér geymsla í sameign 3,4 fm. að stærð.
*** Íbúðin er laus til afhendingar **Eignin skiptist í anddyri, baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara og alrými með stofu og eldhúsi.Anddyri er með góðum skápum og við hlið þeirra innst við alrými er stæði fyrir ísskáp.
Baðherbergi með vínilparket gólfi og flísar í á gólfi og vegg í sturtu, góð innrétting við og pláss fyrir þvottavél og þurrkara, upphengt salerni og sturta með vængjahurðum.
Eldhús og stofa eru í sameiginlegu rými með flísum milli efri og neðri skápa, útgengi úr rýminu um rennihurð út á rúmgóðar svalir til suðurs.
Vínilparket er á íbúð, hljóðdempandi plötur í loftum og loftskiptikerfi.
Svalir eru rúmgóðar og er kominn svalalokun.
Annað: - Komin er svalalokun.
- Gólfhiti
- Loftskiptikerfi
- Loft í íbúð fyrir utan baðherbergi eru klædd hljóðdempuðum loftaplötum
- Ljósleiðari tengdur
- Sameiginlegt leiksvæði með sparkvelli í yfirbyggðu leikjahúsi á baklóð
- Sér- og sameignargeymslur í kjallara.
Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða
[email protected]------------
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.