Opið hús: 15. september 2025 kl. 16:15 til 16:45.Opið hús: Geirþrúðarhagi 4A 204, 600 Akureyri, Íbúð merkt: 01 02 04. Eignin verður sýnd mánudaginn 15. september 2025 milli kl. 16:15 og kl. 16:45.
Kasa fasteignir 461-2010.Geirþrúðarhagi 4A 204. Björt og falleg 4. herbergja 87,8 fm. íbúð með sér inngangi á efri hæð í vestur enda í litlu fjölbýlishúsi í Hagahverfi, fallegt útsýni er úr íbúðinni.Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu ásamt sér geymslu á hæð og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Forstofa / gangur: Ljóst harð parketi á gólfi þar er fatahengi með litlum skáp, einnig er laus skápur í forstofu.
Eldhús: dökk innrétting, hluti efri skápa eru hvítir og viðarplata milli skápa, innbyggður ísskápur með frysti og uppþvottavél. Ofn í vinnuhæð.
Stofa og eldhús
: Eru saman í opnu rými þar sem ljóst harð parket er á gólfi, gluggar til tveggja átta og rennihurð út á steyptar suður svalir, þar er mikið og gott útsýni.
Svefnherbergi: Eru þrjú, öll með ljósu harð parketi á gólfi og svörtum plastlögðum fataskápum.
Baðherbergi: er með gráum flísum á gólfi og hluta veggja, hvít innréttingu og speglaskáp, upphengdu salerni og sturtu með gleri. Pláss fyrir þvottavél og þurrkara er í innréttingu.
Sér
geymsla er á hæðinni og er hún flísalögð og opnanlegur gluggi á henni.
- Vandaðar innréttingar.
- Innbyggður ísskápur með frysti og uppþvottavél fylgja með við sölu eignar.
- Hljóðdempandi plötur í öllum loftum íbúðar nema baðherbergi.
- Innfelld led-lýsing í öllum rýmum íbúðar og Shelly snjallstýring.
- Aukin lofthæð.
- Sér bílastæði með tengi fyrir rafbíl.
Nánari upplýsingar veita:
Sigurpáll á
[email protected] eða í síma 696-1006.
Helgi Steinar á
[email protected] eða í síma 666-0999.
Sibba á
[email protected] eða í síma 864-0054.
Ester - nemi til löggildingar fasteignasala á
[email protected] eða í síma 661-3929.
Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]------------Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.