Kasa fasteignir 461-2010.Lækjartún 16 303. Björt og falleg 3-4 herbergja 81,2 fm íbúð á 3. hæð með sérinngangi í góðu fjölbýli í Naustahverfi.
Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, geymslu inn af þvottahúsi, eldhús, stofu, baðherbergi og 2 svefnherbergi. Geymslan er með góðum glugga og hægt nýta sem þriðja svefnherbergið.Forstofa er mjög rúmgóð með flísum á gólfi og góðum fataskáp ásamt skúffueiningu og spegli.
Stofa er með parketi á gólfi og þaðan er gengið út á svalir til suðurs.
Eldhús er með parketi á gólfi. Innréttingin er með góðu skápa- og bekkjarplássi og pláss er í innréttingu fyrir uppþvottavél og ísskáp.
Svefnherbergi eru tvö, bæði rúmgóð með parketi á gólfum og góðum fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtutækjum, góð innrétting með spegli og innbyggðri lýsingu, handklæðaofn og vegghengt salerni. Gluggi er á baðherberginu.
Þvottahús er með flísum á gólfi, skolvask í bekk og pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er inn af þvottahúsi. Þar er parket á gólfi og gluggi svo mögueiki er á að nýta rýmið sem þriðja svefnherbergið.
- Sameiginleg hjólageymsla.
- Góðar svalir til suðurs og frábært útsýni.
- Stutt í leik- og grunnskóla.
- Áætlað fasteignamat 2025 - 52.750.000.-
Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]------------Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.