Opið hús: 30. ágúst 2025 kl. 13:00 til 14:00.Opið hús: Þingvallastræti 25, 600 Akureyri. Eignin verður sýnd laugardaginn 30. ágúst 2025 milli kl. 13:00 og kl. 14:00.
Kasa fasteignir, Akureyri s: 461-2010.Kasa fasteignir kynnir til sölu virkilega glæsilegt og afar virðulegt 346,4 fermetra einbýlishús á þremur hæðum á 1.391,3 fermetra gróinni og ræktaðri lóð á einstökum stað við Þingvallastræti á Akureyri. Aukaíbúð í kjallara hússins, sem bæði er með sérinngangi og innangengt er í. Gestaíbúð hefur verið útbúin í bílskúr hússins. Húsið er allt nýmálað að utan.
Bókið einkatíma fyrir skoðun eignarinnar á netfanginu [email protected]
Fyrirhugað fasteignamat eignarinnar fyrir árið 2026 er kr. 117.350.000.-
Hér er um að ræða afar glæsilegt einbýlishús á þremur hæðum sem stendur á mjög stórri lóð á frábærum stað, miðsvæðis á Akureyri.
Um er að ræða einstaka hönnunarperlu eftir Sigurð Guðmundsson arkitekt (1885-1958). Húsið sameinar á látlausan hátt klassíska húsagerðarlist og Bauhaus stefnu 20. aldar. Byggingarár 1936.Aðalinngangur í húsið er á miðhæð þess. Á þeirri hæð eru m.a. tvær samliggjandi mjög rúmgóðar og bjartar stofur með útgengi á verönd til suðurs. Rúmgott og bjart eldhús er á hæðinni, stigahol og gestasnyrting. Aukin lofthæð er á aðalhæð hússins. Nýjar, sérsmíðaðar bókahillur.
Á efri hæð hússins eru stórt baðherbergi með hornbaðkari, stórt hjónaherbergi með fataherbergi innaf með miklu skápaplássi. Á hæðinni eru einnig tvö barnaherbergi, annað mjög stórt, auk þess sem sturtuherbergi er á hæðinni. Aukin lofthæð er á efri hæð hússins.
Í kjallara hússins er sér 2ja herbergja íbúð sem bæði er innangengt í og með sérinngangi frá götu. Íbúðin skiptist í stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Auk þess eru í kjallara geymsla og gufubað.
Bílskúr á lóðinni, sem er 53,6 fermetrar að stærð, var nýlega innréttaður sem gestaíbúð og er í góðu ástandi.
Húsið hefur verið þó nokkuð endurnýjað á undanförnum árum:- Meðal annars hefur verið útbúin gestaíbúð í bílskúr, sett nýtt eldhús í aukaíbúð í kjallara hússins auk nýs baðherbergis og hluta gólfefna.
- Sett var upp gufubað í kjallara árið 2014.
- Allar frárennslislagnir voru endurnýjaðar árið 2012.
- Gler í húsinu var endurnýjað eins og þurfti árið 2022
- Húsið er nýmálað að utan og að hluta nýlega málað að innan.
Lóðin er 1390,0 fermetrar að stærð með stórum sólpalli sunnan megin við húsið. Grenitrjám hefur verið plantað allt í kringum húsið sem munu innan fárra ára mynda skjólvegg allt í kringum húsið. Sjón er sögu ríkari.Um húsið: Þingvallastræti 25 er tvílyft steinsteypuhús með lágu valmaþaki og á lágum kjallara. Það er undir áhrifum frá fúnkísstefnu, nánast ferningslaga á grunnfleti en þó nokkuð óhefðbundið útlits, gluggasetning ekki eins fastskorðuð og oft var á funkishúsum t.d. við Helgamagrastræti og Ægisgötu. Stórir og sérstæðir gluggar og bogadreginn dyraumbúnaður gefur húsinu sinn sérstaka svip. Húsið er klætt grjótmulningi. Á austurhluta lóðar stendur bílskúr. Umhverfi hússins ber þess merki að það er reist í þáverandi dreifbýli, en lóðin er geysi víðlend og mikið stærri en næstu lóðir. Ekki var farið að byggja að ráði í næsta nágrenni hússins fyrr en árin um og eftir 1950.
Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]------------Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.