Kasa fasteignir 461-2010.Skottugil 5 íbúð 101 - Vel skipulögð og nokkuð endurnýjuð 3-4 herbergja íbúð á neðri hæð í fjórbýli í Giljahverfi - stærð 87,8 fm.
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, baðherbergi, þrjú svefnherbergi (eitt skráð sem geymsla), þvottahús ásamt verönd til suðurs.Forstofa: Flísar á gólfum og tvöfaldur skápur.
Eldhús: Nýleg innrétting með efri og neðriskápum, flísar á milli skápa. Pláss fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu, bakara ofn í vinnuhæð. Parekt á gólfi.
Stofa: Opið, bjart rými með parketi á gólfum, gengið er út frá stofu út á suður verönd.
Svefnherbergi: Eru þrjú, öll með parketi á gólfum og fataskápum. Eitt herbergjanna er skráð sem geymsla, en er nýtt sem svefnherbergi.
Baðherbergi: Var gert upp fyrir nokkrum árum, þar eru flísar á gólfum og í sturtu, góð innrétting, salerni og handklæðaofn.
Þvottahús: Flísar á gólfi, bekkur með vask og skápur einnig er opnanlegur gluggi.
- Á síðustu árum var eldhús, baðherbergi, innihurðar og gólfefni endurnýjað að mestu.
- Barnvænt hverfi, stutt í skóla og leikskóla.
- Verönd snýr í suður.
- Fyrirhugað fasteignamat 2026: 56.450.000.-Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða [email protected]------------Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.