Tungusíða 10, 603 Akureyri
112.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús með aukaíbúð
6 herb.
207 m2
112.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1980
Brunabótamat
98.250.000
Fasteignamat
95.000.000

Kasa fasteignir 461-2010.

Tungusíða 10. Gott og vel staðsett einbýlishús með bílskúr og aukaíbúð samtals 207.5 fm á góðum stað í Síðuhverfi.

Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, þvottahús, baðherbergi, gestasalerni, 5 svefnherbergi og góða verönd með heitum potti ásamt bílskúr og studioíbúð í kjallara bílskúrs.

Forstofa: 
er flísalögð með opnu fatahengi. 
Snyrting: Lítil snyrting er inn af forstofu. Þar eru flísar í hólf og gólf, ljós innrétting, handklæðaofn og sturta.
Baðherbergi: er á herbergisganginum. Það er rúmgott og flísalagt í hólf og gólf með hornbaðkari, nýlegri innréttingu, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gluggi er inni á baðherberginu og þar er hiti í gólfi. 
Stofa: er björt og rúmgóð með parketi á gólfum.
Eldhús/borðstofa liggja saman í opnu rými. Þar eru flísar á gólfum og ljós eldhúsinnrétting. Úr borðstofu er gengið út á stóra verönd með heitum potti.
Þvottahús: Er inn af eldhúsi og þar eru hillur.
Herbergi: Eru fimm þar ef er eitt lítið herbergi inn af hjónaherbergi. Þrjú önnur barnaherbergi með plastparket á gólfum.
Bilskúr: Er nokkuð rúmgóður og með gluggum eftir á að ganga frá klæðningu í loft.

Undir bílskúr er búið að gera stúdíoíbuð sem er tilbúin til útleigu, þar er góð eldhúsinnrétting og stórt baðherbergi með sturtu og plássi fyrir þvottavél. Golfhiti er í rýminu.

Góður sólpallur er í kringum húsið og heitur pottur, lóð var tekinn í gegn fyrir nokkrum árum og er öll hin snyrtilegasta.

- Stórt steypt bílaplan er við eignina.
- Nýjir gluggar og útidyrahurðar.
- Hitaveitu heitur pottur á palli.
- Garðskúr í garði.
- Áætlað fasteignamat 2026: 103.700.000.-

Nánari upplýsingar veita:
Sigurpáll á [email protected] eða í síma 696-1006.
Helgi Steinar á [email protected] eða í síma 666-0999.
Sibba á [email protected] eða í síma 864-0054.
Ester - nemi til löggildingar fasteignasala á [email protected] eða í síma 661-3929. 

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.