Opið hús: 16. júní 2025 kl. 16:00 til 17:00.Opið hús: Fannagil 8, 603 Akureyri. Eignin verður sýnd mánudaginn 16. júní 2025 milli kl. 16:00 og kl. 17:00.
Kasa fasteignir 461-2010.
Fannagil 8. Fallegt parhús með auka íbúð í Giljahverfi. Húsið er samtals 187.5 fm auk útigeymslu. Stór steypt verönd með heitum potti og búið að steypa stiga niður að leiguíbúð. Sérinngangur er í íbúðina á neðri hæð og auka bílastæði fyrir íbúð á neðri hæð.
Efri hæð skiptist eftirfarandi. Forstofa, gangur, eldhús í opnu rými, forstofa, stofa, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymsla og bílskúr.Forstofa: Flísar á gólfum og hvítur fataskápur.
Eldhús: Stór nýleg eldhúsinnrétting bæsuð eik innbyggð nýleg uppþvottavél í vinnuhæð., nýlegur ofn og nýlegt Siemens helluborð. Eyja er í eldhúsi í eyju eru góðar skúffuhirslur.
Stofa: Björt og rúmgóð stórir gluggar og gott útsýni, flísar eru á gólfum og útgengi er út á steyptan pall.
Baðherbergi: Þar er sérsmíðuð innrétting og stór spegill, baðkar með sturtuhengi og upphengt salerni.
Svefnherbergi: Eru þrjú með flísum á gólfum, skápar eru í tveimur þeirra, stórir skápar eru í hjónaherbergi.
Þvottahús: Flísar á gólfum, hvít innrétting og vaskaborð.
Geymsla er inn af bílskúr og þar eru góðar hillur og geymsluloft.
Bílskúr: Þar er lakkað gólf, rafmagn er í bílskúrshurð.
Stór steypt
verönd og steyptir veggir, þar er
heitur pottur, hiti er í hluta verandar.
Hiti er í bílaplani og einnig búið að steypa auka stæði fyrir íbúð á neðri hæð.
Útigeymsla er undir veröndinni við hlið inngangs í íbúð á neðri hæð. Hún er rúmgóð með uppdraganlegri rennihurð.
Íbúð á neðri hæð skiptist í: Forstofu, opið rými þar sem er eldhús og stofa, baðherbergi, svefnherbergi.
Forstofa: Er með flísum á gólfum og þar er fatahengi.
Eldhús/ stofa: Rúmgott rými með flísum á gólfum, hvít eldhúsinnrétting.
Svefnherbergi: Er rúmgott, flísar á gólfum og stór og góður skápur.
Baðherbergi: Þar eru flísar á gólfum, lítil skúffuinnrétting og sturta.
- Falleg eign með aukaíbúð í Giljahverfi.
- Hiti í gólfum.
- Mikil lofthæð er í íbúð á efri hæð.
- Stór verönd með heitum potti.
- Hiti er í hluta á verönd.
- Hiti er í bílaplani.
- Gott útsýni er úr eigninni.
- Áætlað fasteignamat fyrir 2025: 101.950.000.-Nánari upplýsingar veita:Sigurpáll á
[email protected] eða í síma 696-1006.
Helgi Steinar á
[email protected] eða í síma 666-0999.
Sibba á
[email protected] eða í síma 864-0054.
Ester - nemi til löggildingar fasteignasala á
[email protected] eða í síma 661-3929.
------------Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.