Valagil 19, 603 Akureyri
99.900.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
3 herb.
131 m2
99.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2003
Brunabótamat
63.470.000
Fasteignamat
80.000.000

Kasa fasteignir 461-2010.

Valagil 19, Akureyri

Fallegt og vandað 3 herbergja 131,6 fm. parhús á einni með bílskúr ásamt garðhúsi sem er ekki er inn í fermetratölu. Útisvæði er sérlega glæsilegt með steyptum pöllum ásamt timburpalli. Einnig er heitur pottur og góð lýsing á útisvæðinu. Hiti er í stórum hluta útisvæðisins.

** Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning **

Húsið skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borstofu, baðherbergi, tvö svefnherbergi, bílskúr, háaloft.

Forstofa:
Þar eru flísar á gólfum og góður fataskápur.
Stofa/borðstofa: Rúmgott og bjart rými með flísum á gólfum gengið er út á glæsilega útiaðstöðu frá borðstofu. Góður sérsmiðaður skápur er í stofurými.
Eldhús: Þar er góð innrétting, hvítir efri skápar, flísar á milli skápa og dökk borðplata og vönduð tæki. Hurð er út frá eldhúsi út á útisvæði.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, vönduð innrétting, gott skápapláss. Upphengt salerni, hornbaðkar og sturta.
Svefnherbergi: Hjónaherbergi er mjög rúmgott, flísar á gólfum og góður fataskápur. Annað herbergi er inn af forstofu með flísum á gólfum, þar yfir er háaloft.
Geymsla: Þar sem að þvottahús er teiknað er nú rými með góðum skáp, hillum og skrifborði.
Geymsluloft: Farið er upp á rúmgott parketlagt geymsluloft upp frá geymslurými, þar er fellistigi.
Bílskúr: Þar eru flísar á gólfum, stór og góð innrétting. Gert er ráð fyrir þvottavél í innrétingunni. Allur frágangur er til fyrirmyndar.
Garðskúr: Góður einangraður með parketi á gólfum.

- Þak endurnýjað 2025
- Hiti í gólfum.
- Hiti er í bílaplani.
- Hiti er í hluta á verönd, t.d í kringum heita pott og að garðskúr.
- Glæsilegt útisvæði, steypt og timburverönd.
- Led lýsing í húsi og útisvæði.
- Heitur pottur.

Nánari upplýsingar veita:
Sigurpáll á [email protected] eða í síma 696-1006.
Helgi Steinar á [email protected] eða í síma 666-0999.
Sibba á [email protected] eða í síma 864-0054.
Ester - nemi til löggildingar fasteignasala á [email protected] eða í síma 661-3929. 

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.