Kasa fasteignir 461-2010.Víðilundur 20, íbúð 401 - Björt og falleg 3 herbergja 89,3 fm íbúð á 4. hæð í fjöleignarhúsi með lyftu.
Íbúðin er á austur hlið hússins en sólskáli og svalir snúa til suðurs. Glæsilegt útsýni er úr eigninni. Eignin skiptist í forstofu, hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu, sólskála, svalir og geymslu ásamt sameiginlegur þvottahúsi á hæðinni og sér geymslu í kjallara.Forstofa: Parket á gólfi og góður fataskápur
Eldhús, stofa og hol eru í opnu rými með parketi á gólfum. Snyrtileg, ljós innrétting er í eldhúsinu, flísar á milli skápa og ofn í vinnuhæð. Ísskápur, uppþvottavél og örbylgjuofn geta fylgt íbúðinni.
Svalir og sólskáli: Úr borðstofu er gengið út í sólskála og þaðan út á svalir til suðurs.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfi. Mjög gott skápapláss er í hjónaherbergi og minni skápur í gestaherbergi.
Baðherbergi er rúmgott með góðri innréttingu, sturtu, salerni og handklæðaofni. Tengi er fyrir þvottavél á baðherbergi.
Geymsla er inn af forstofu. Þar er dúkur á gólfi og gott hillupláss.
- Kvöð er á eigninni um að eigandi skuli vera 60 ára og eldri
- Innangengt er í þjónustu- og félagsmiðstöð á jarðhæð í Víðilundi 22
- Snyrtileg sameign
- Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni
- Sér geymsla er í kjallara
Framkvæmdir: - Brunakerfi hússins var endurnýjað árið 2019
- Drenað var við húsið árið 2020
- Ný lyfta var sett í húsið árið 2022
- Þakrennur voru lagfærðar árið 2022
- Mynd-dyrasími var settur upp í öllum íbúðum árið 2023
Nánari upplýsingar veita:Sigurpáll á
[email protected] eða í síma 696-1006.
Helgi Steinar á
[email protected] eða í síma 666-0999.
Sibba á
[email protected] eða í síma 864-0054.
Ester - nemi til löggildingar fasteignasala á
[email protected] eða í síma 661-3929.
------------Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.