Stekkjarbyggð 25 , 607 Akureyri
42.900.000 Kr.
Sumarhús
2 herb.
49 m2
42.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
2017
Brunabótamat
36.500.000
Fasteignamat
34.400.000

Kasa fasteignir 461-2010.

Stekkjarbyggð 25 Lundskógur.  Fallegt og vel um gengið sumarhús rétt við Lunds golfvöllinn, bústaðurinn er 49,3 fm ásamt 9 fm gestahúsi.
Stór verönd,  mikið og fallegt útsýni er frá húsinu.


Húsið skiptist í: Forstofu, rúmgott alrými þar er eldhús og stofa, rúmgott svefnherbergi, baðherbergi.

Forstofa: Þar er parket á gólfum og fatahengi.
Eldhús: Þar er vandað parket á gólfum og stór og góð innrétting.
Stofa/borðstofa: Bjart og rúmgott rými með parketi á gólfum.
Svefnherbergi: Er rúmgott með parketi á gólfum, góður skápur er í svefnherbergi.
Baðherbergi: Þar eru parket á gólfum, innrétting, upphengt salerni og sturta.
Verönd: Stór timburverönd, lýsing er í verönd.
Smáhýsi er við bílaplan, þar inn er tvíbreytt rúm og gluggi er á húsinu.

- Húsið er staðsett rétt við golfvöllinn.
- Gestahús er 9 fm.
- Stór og góður sólpallur með innbyggðri lýsingu.

Nánari upplýsingar:
Sigurpáll á [email protected] eða í 696-1006.
Helgi á [email protected] eða í 666-0999.
Sibba á [email protected] eða í 864-0054.

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.