Kasa fasteignir 461-2010.Hjallatún 9 íbúð 205 - Falleg og vel skipulögð 3 herbergja 98,3 fm íbúð á efri hæð með svölum til vesturs og rúmgóðum sólpalli við inngang.
Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, tvö svefnherbergi, geymslu og þvottahús.
Fyrir framan eignina er geymsluskúr sem er sameiginlegur með íbúðum í Hjallatúni 9 og 11.
** Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning **Forstofa: Rúmgóð með flísum á gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Eldhús: Vönduð L-laga innrétting með flísum á milli skápa. Uppþvottavél er innbyggð í innréttingu og fylgir með við sölu eignar. Út úr eldhúsi er hurð út á steyptar vestur svalir og af þeim er opið yfir á hellulagðar verönd sem er fyrir framan forstofu.
Stofa og eldhús: Eru í opnu rými þar sem er parket á gólfi og stórir gluggar til vesturs.
Svefnherbergi: Eru tvö, bæði með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja, innrétting með fínu skápaplássi, upphengt salerni og sturta með sturtugleri.
Geymsla: Er með parketi á gólfi og veggfestu skrifborði.
Þvottahús: Er inn af geymslunni, þar eru flísar á gólfi og grá innrétting með stálvask.
- Sameiginlegur geymsluskúr er fyrir íbúðir í Hjallatúni 9 og 11.
- Hitalögn er í bílaplani
- Allar innréttingar nema í þvottahúsi eru spónlagðar með eik
- Verönd yfir bílskúr neðri hæðar er skráð 25,5 fm að stærð og svalir til vesturs eru skráðar 9,7 fm.
- Stutt í leik- og grunnskóla
- Ljósleiðari er tilbúinn til notkunar
Nánari upplýsingar veita:Sigurpáll á
[email protected] eða í síma 696-1006.
Helgi Steinar á
[email protected] eða í síma 666-0999.
Sibba á
[email protected] eða í síma 864-0054.
Ester - nemi til löggildingar fasteignasala á
[email protected] eða í síma 661-3929.
------------Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.