Kasa fasteignir 461-2010.Lækjargata 22b. Vel skipulögð og björt 3 herbergja 95,2 fm íbúð á tveimur hæðum í tvíbýli á fallegum stað í innbæinum á Akureyri.Eignin var nánast endurgerð fyrir ca. 11 árum, s.b. allar lagnir endurnýjaðar ásamt rafmagni, milliveggjum, innréttingum, þaki, gluggum, hurðum og gólfefni.
Hitalagnir eru í gólfi neðri hæðar og hefðbundið ofnkerfi á efri hæð. Húsið er steinsteypt, gólf og útveggir neðrihæðar. Milligólf, veggir og þak efrihæðar eru timbur.
Steyptur veggkantur er í porti vestan við húsið og að norðan, stigi upp á verönd. Bílastæði við eign er malarplan. Húsið stendur á 355 m2 eignarlóð.Neðri hæð
Inngangur er um forstofu á neðri hæð, flísar á gólfi og fatahengi.
Hol er við forstofu
með kústaskáp og neðri skápum með vinnuborði ásamt aðstöðu fyrir ísskáp, flísar á gólfi.
Eldhús er með flísum á gólfi. Innrétting með efri- og neðri skápum, uppþvottavél, bakaraofn, span helluborð og háf. Útgengt er úr eldhúsi um tvöfalda hurð til vesturs.
Stofan er í framhaldi af eldhúsi með flísum á gófli og þar er timburstigi upp á efri hæð hússins.
Þvottaherbergi/inntaksrými er milli eldhúss og stofu með flísum á gólfi, innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara og vaskaborð með neðri skápum og hillum á vegg.
Efri hæðTvö svefnherbergi eru á efri hæð, bæði nokkuð rúmgóð með parket á gólfi. Fastur fataskápur er í báðum herbergjum og úr hjónaherbergi er útgengt á verönd til norðurs.
Baðherbergi er með flísar á gólfi og veggjum að mestum hluta, upphent klósett, sturtu og innréttingu með efri- og neðri skápum.
- Nýlega er búið að helluleggja verönd fyrir framan hús og setja gróðurker þar.
- Hiti er í verönd fyrir framan hús.
- Búið að leggja fyrir rafmagni við bílastæði.
- Allar innréttingar og hurðir eru frá trésmiðjunni Ölur, Akureyri.
- Húsið stendur á eignarlóð.
- Eignin er í einkasölu.
Nánari upplýsingar veita:Sigurpáll á
[email protected] eða í síma 696-1006.
Helgi Steinar á
[email protected] eða í síma 666-0999.
Sibba á
[email protected] eða í síma 864-0054.
Ester - nemi til löggildingar fasteignasala á
[email protected] eða í síma 661-3929.
------------Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.