Kasa fasteignir 461-2010.Sómatún 5 íbúð 202. Björt og vel skipulögð 4 herbergja 97 fm íbúð á efrihæð í fjórbýli í Naustahverfi.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, geymslu sem nýtist sem svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.Forstofa: Góður þrefaldur fataskápur, flísar á gólfum.
Þvottahús: Er inn af forstofu með góðri innréttingu með vask og hillum, flísar eru á gólfum. Pláss fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Eldhús: Er í opnu og björtu rými, með harðparketi á gólfium. Eldhúsinnrétting er hvít með dökkum borðplötum, flísar á milli skápa. Spanhelluborð og bakaraofn í vinnuhæð.
Herbergi: eru þrjú öll rúmgóð og björt með harðparekti á gólfum og rúmgóðum fataskápum, eitt þeirra er skráð sem geymsla en er nýtt sem herbergi.
Stofa: Rúmgott rými með harðperketi á gólfum og stórum gluggum. Gengið er út úr stofu á steyptar suðursvalir.
Baðherbergi: Þar er ljós innrétting, flísar á gólfum og hluta veggja, baðkar með sturtutækjum og upphengt salerni ásamt handklæðaofni.
- Rúmgóðar suður svalir.
- Fallegt útsýni.
- Ljósleiðari
- Nýtt harðparket frá 2020
- Gólfhiti í allri íbúð.
- Sameiginleg geymsla.
- Eignin er í einkasölu.
Nánari upplýsingar veita:Sigurpáll á
[email protected] eða í síma 696-1006.
Helgi Steinar á
[email protected] eða í síma 666-0999.
Sibba á
[email protected] eða í síma 864-0054.
Ester - nemi til löggildingar fasteignasala á
[email protected] eða í síma 661-3929.
------------Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.