Kasa fasteignir 461-2010.Hólabraut 18, íbúð 102. Mikið uppgerð 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á jarðhæð. Góð staðsetning rétt við miðbæinn. Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, 2 svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu.
Eignin hefur verið mikið uppgerð, settir upp léttir inniveggir, eldhúsinnrétting, innfelldar hurðar og harðparket. Forstofa, eldhús og stofa: Komið er inn í opið rými með harðparketi á gólfum. Falleg eldhúsinnrétting með innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum ískáp er á einum veggnum og lítill borðkrókur rúmast við enda innréttingarinnar.
Baðherbergi: Ljós innrétting, sturta og upphengt salerni. Flot er á gólfi.
Svefnherbergi: Eru tvö með harðparketi á gólfum.
Annað- Skipt var um gler í gluggum í báðum svefnherbergjum í febrúar 2025.
Nánari upplýsingar veita:Sigurpáll á
[email protected] eða í síma 696-1006.
Helgi Steinar á
[email protected] eða í síma 666-0999.
Sibba á
[email protected] eða í síma 864-0054.
Ester - nemi til löggildingar fasteignasala á
[email protected] eða í síma 661-3929.
------------Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.