Gudmannshagi 1 403, 600 Akureyri
59.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
79 m2
59.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2021
Brunabótamat
59.120.000
Fasteignamat
55.150.000

Kasa fasteignir 461-2010.

Gudmannshagi 1 íbúð 403. Björt og falleg 4 herbergja 79,1 fm íbúð á efstu hæð í nýlegri lyftublokk ásamt sér bílastæði í bílakjallara. 

Eignin skiptist í forstofu, baðherbergi þar sem gert er ráð fyrir þvottaaðstöðu, eldhús, stofu, gang, hjónaherbergi og tvö barnaherbergi. Íbúðinni fylgir 7,7 fm geymsla i kjallara og 6 fm svalir til norðurs ásamt sér merktu stæði í bílakjallara.

Forstofa: Flísar á gólfi & rúmgóður fataskápur.
Stofa: Harðparket á gólfum. Gengið er út á norðursvalir úr stofu.
Eldhús: Svört innrétting með hvítum efriskápum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Ágætis bekkjarpláss með vaski. Harðparket á gólfum.
Baðherbergi: Svört innrétting með góðu skápaplássi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Innangeng sturta með sturtuglerjum. Vegghengt salerni. Flísar á gólfi og hluta af veggjum.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með harðparketi á gólfi og stórum svörtum fataskáp.
Barnaherbergi: Tvö herbergi með harðparket á gólfi og svörtum fataskápum.
Geymsla: Sér geymsla í sameign, rúmgott rými með rafmagnstengli og lökkuðu gólfi.

- Eignin er laus til afhendingar 1. Júní 2025.
- Glæsilegt útsýni
- Gólfhiti í allri íbúðinni.
- Þvotta aðstaða fyrir bíla í bílakjallara
- Sér rafbíla tengill við bílastæði í kjallara.
- Allar innréttingar eru frá HTH.
- Vönduð og góð eign.

Nánari upplýsingar veita:
Sigurpáll á [email protected] eða í síma 696-1006.
Helgi Steinar á [email protected] eða í síma 666-0999.
Sibba á [email protected] eða í síma 864-0054.

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.