Kasa fasteignir 461-2010.Freyjunes 10 bil 106 - Gott 72,0 fm iðnaðarbil með rúmgóðu millilofti / kaffistofu.Eignin er ca 7,3 metrar á breidd og 9,5 metrar á dýpt.
Stór rafdrifin innkeyrsluhurð og sér gönguhurð.
Veggir eru hvít málaðir og gólf flísalagt með gráum flísum.
Stigi er upp á milliloft. Þar er ljóst parket á gólfum og eldhúsinnrétting. Búið er að stækka milliloftið út til hliðar og eru þar tvær geymslur.
Snyrting með flísum á gólfi, salerni og vegghengdum vaski.
- Gólfhiti er á neðri hæðinni.
- Húsið er steypt og byggt árið 2008. Allt í kringum húsið er malbikað bílaplan.
- Gott útisvæði - Heildarstærð lóðar er 3820,9 fm
Nánari upplýsingar veita:Sigurpáll á
[email protected] eða í síma 696-1006.
Helgi Steinar á
[email protected] eða í síma 666-0999.
Sibba á
[email protected] eða í síma 864-0054.
------------Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.