Kasa fasteignir 461-2010.Móasíða 1B-203. Falleg og vönduð 2-3 herbergja 87,3 fm íbúð í nýlegu húsi við Móasíðu í Síðuhverfi.
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi með þvottaaðstöðu, Svefnherbergi og geymslu innan íbúðar sem nýtist sem svefnherbergi. Einnig er sér geymsla í sameign og rúmgóðar vestur svalir.Forstofa er með parketi á gólfi.
Stofa og eldhús eru í sama rými, þar er parket á gólfi, gengið út á stórar suðvestursvalir. Í Eldhúsi er hágglans hvít innrétting með innbyggðri uppþvottavél. Bakaraofn og combi ofn eru í vinnuhæð. Pláss er fyrir ísskáp í innréttingu. Gott skápa og skúffupláss eru í innréttingu.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, góðri innréttingu með plássi fyrir þvottavél og þurrkari. Innangeng sturta, vegghengt salerni og handklæðaofn.
Herbergi er með parketi á gólfi og rúmgóðum hvítum fataskáp.
Geymsla er í dag nýtt sem herbergi, parket á gólfi og fataskápur.
Sérgeymsla í sameign: Er skráð 12,7 fm af heildarfermetrum eignar. Geymslan er staðsett í Móasíðu 1A og eignast kaupendur þ.a.l. eignarhlut í þeirri húseign, af þeim sökum ber kaupendum einnig að vera aðilar að húsfélagi í Móasíðu 1a.
- Gólfhiti í íbúð.
- Svalagólf eru með hitalögn.
- Ljósleiðari.
- Vandaðar innréttingar, harðparket og flísar á gólfum.
- Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á 1. hæð
Nánari upplýsingar veita:Sigurpáll á
[email protected] eða í síma 696-1006.
Helgi Steinar á
[email protected] eða í síma 666-0999.
Sibba á
[email protected] eða í síma 864-0054.
------------Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.