Mýrarvegur / kaupangur , 600 Akureyri
94.500.000 Kr.
Atvinnuhús/ Verslunarhúsnæði
2 herb.
283 m2
94.500.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1973
Brunabótamat
103.800.000
Fasteignamat
41.800.000

Kasa fasteignir 461-2010.

Verslunar og þjónusturými á tveimur hæðum samtals 283,2 fm í verslunarkjarnanum Kaupangi á Brekkunni. Húsnæðið hefur verið endunýjað töluvert á undanförnum árum. Á efri hæð er ísbúðin Ísgerðin og neðri hæð er ísgerð og ísframleiðsla fyrir sölu í stórmörkuðum.

Rekstur og framleiðsla er einnig til sölu. Til greina kemur að selja allt, húsnæði, rekstur á ísbúðinni og síðan ísframleiðslu eða aðeins húsnæðið.

Efri hæð: 

Vínyl parket er á hæðinni. Tvö salerni eru á hæðinni. Eldhús og lagerrými eru á hæðinni. Ræstingaherbergi/ geymsla er inn af almenningssalerni.
Baka til á efrihæð er tvöföld lagerhurð og þar er staðsett vörulyfta.

Neðri hæð: Þar er gott eldhús/framleiðslurými, þar er einnig stór göngukælir og frystiklefi, vaskar og allt sem þarf fyrir matvælaframleiðslu.
Í hinu rýminu á neðri hæðinni er lager, skrifstofurými og starfsmannaaðstaða. Rúmgott pláss og þar er vörulyftan.

- Komin er sér 3 fasa rafmagnstafla fyrir báðar hæðir.
- Góð útiaðstaða og bílastæði.
- Staðsett miðsvæðis á Brekkunni í búðarhverfi, í nágrenni við skóla og íþróttasvæði KA.
- Stór göngukælir er á neðri hæð.
- Frystiklefi á neðri hæð.
- Vörulyfta á milli hæða.
- Góð staðsetning í stóru íbúðarhverfi.

Nánari upplýsingar veita:
Helgi Steinar á [email protected] eða í síma 666-0999.
Sibba á [email protected] eða í síma 864-0054.

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.