Hafnarstræti 26b 205, 600 Akureyri
97.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
5 herb.
130 m2
97.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2019
Brunabótamat
67.000.000
Fasteignamat
71.400.000

Kasa fasteignir 461-2010.

Hafnarstræti 26. Falleg 4 herbergja 130,1 fm. íbúð á tveimur hæðum skammt frá miðbæ Akureyrar. Frábært  útsýni yfir Pollinn.

Íbúðin skiptist eftirfarandi.
Neðri hæð:
Forstofa, salerni, stofa/borðstofa, eldhús, hol, svefnherbergi, svalir snúa að Pollinum.
Efri hæð: Hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, svalir snúa að Pollinum.

Neðri hæð:
Forstofa: Þar er parket á gólfum og góður fataskápur.
Salerni: Flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, skúffuinnrétting og handlaug.
Stofa/ borðstofa: Rúmgott og bjart rými með parketi á gólfum, gengið er út á svalir út frá borðstofu.
Eldhús: Góð innrétting og parket á gólfum., hvít og hluta efri skápa í brúnum lit, innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél. Steinn er í borðplötu og flísar á mili skápa.
Svefnherbergi: Rúmgott með parketi á gólfum og góðum skáp.
Mikið og gott útsýni er úr suðurgluggum inn í Eyjafjörð.

Efri hæð: 
Hol:
Rúmgott með parketi á gólfum á efri hæð og stiga er vínylparket, út af holinu er gengið út á svalir með frábæru útsýni.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, góð innrétting, upphengt salerni og góðir skápar. Innrétting er fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi: Eru tvö á hæðini bæði með parketi á gólfum. Annað er með fataskáp og inn af hinu herberginu er fataherbergi.

Annað:
- Frábært útsýni er úr íbúðinni.
- Í göngufæri við miðbæ Akureyri.
- Mikill lofhæð og víða upptekin loft.
- Innbyggð lýsing.
- Steinn í borðplötum
- Gorenje eldhústæki.
- Sérgeymsla fylgir íbúð.
- Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er fyrir húsin.


Nánari upplýsingar veita:
Sigurpáll á [email protected] eða í síma 696-1006.
Helgi Steinar á [email protected] eða í síma 666-0999.
Sibba á [email protected] eða í síma 864-0054.

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.