Dvergagil 15 , 603 Akureyri
119.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
4 herb.
160 m2
119.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1993
Brunabótamat
91.900.000
Fasteignamat
86.100.000

Kasa fasteignir 461-2010.

Dvergagil 15 - Fallegt og vel skipulagt 160,1 fm 4-5 herbergja einbýlishús með innbyggðum bílskúr á rólegum stað innst í botnlanga í Giljahverfinu. Stór gróin lóð fylgir eigninni.

Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr. Í dag er herbergi í c.a helming af bílskúr. 


Forstofa: Ljósar flísar á gólfum.
Stofa: Rúmgott rými með stórum gluggum og mikilli lofthæð. Parket á gólfum. Gengið er út í garð til suðurs úr stofu.
Eldhús: Er með miklu skápa og skúffuplássi. Viðarlituð og hvít innrétting með plássi fyrir ísskáp og bakaraofn í vinnuhæð. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Hvít skúffu innrétting með stein borðplötu og undirlímdum vaski. Innangeng sturta með glerjum. Vegghengt salerni og handklæðaofn.
Hjónaherbergi: Er með fataherbergi og góðu skápaplássi. Hurð er út í garð úr herberginu. Parket á gólfi.
Herbergi 1: Er nokkuð rúmgott með parketi á gólfum og fataskáp.
Herbergi 2. Parket á gólfum og fataskápur.
Geymsla: Er með parketi á gólfi og hillum. Lúga er upp á háaloft í geymslunni.
Þvottahús: Er nokkuð rúmgott með hvítri innréttingu og góðu bekkjarplássi með vaski. Flísar á gólfum og milli skápa. Í þvottahúsi er einnig annar inngangur i eignina.
Bílskúr: Er hólfaður niður í dag og búið að gera herbergi í hluta af skúrnum, þar eu flísar á gólfum og fataskápur. Auðvelt er að fjarlægja vegginn og stækka bílskúrinn aftur. Geymsluloft ef yfir hluta bílskúrs.

- Hleðslustöð fyrir rafbíla fylgir.
- Stór gróin lóð.
- Geymsluskúr er á lóð.
- Verönd til suðurs og sólpallur til vesturs.
- Virkilega skemmtilega hönnuð eign.

Nánari upplýsingar veita:
Sigurpáll á [email protected] eða í síma 696-1006.
Helgi Steinar á [email protected] eða í síma 666-0999.
Sibba á [email protected] eða í síma 864-0054.

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.