Víðilundur 16 B, 600 Akureyri
49.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
91 m2
49.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1970
Brunabótamat
39.700.000
Fasteignamat
42.800.000

Kasa fasteignir 461-2010.

Víðilundur 16 B Akureyri - Rúmgóð 3 herbergja íbúð á fyrstu hæð á vinsælum stað á Brekkunni. Íbúðin er 86,4 fm ásamt 5,4 fm sérgeymslu í kjallara. Samtals er eignin 91,8 fm.

Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi og þvottahús/geymslu innan íbúðar ásamt sérgeymslu í sameign.

** Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning **


Forstofa parket á gólfi og fataskápur.
Eldhúsið er með ljósri eldri innréttingu með ágætis skápa plássi. Pláss fyrir ísskáp í innréttingu. Parket er á gólfi. 
Stofa er nokkuð rúmgóð, parket á gólfi, góðar suðvestursvalir.
Baðherbergið er með dúk á gólfi, Sturtuklefi með sturtutækjum og salerni. Vegghengdir skápar. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu.
Svefnherbergin eru tvö, parket á gólfum herbergja og fataskápur í hjónaherbergi. 
Þvottahús er inn af eldhúsi, lakkað gólf, bekkjarplata með vaski, vegghengdar hillur og gluggi
Geymsla er inn af þvottahúsi, lakkað gólf og hillur.
Sérgeymsla í sameign: Lakkað gólf og gluggi.

- Eigandi íbúðar hefur aldrei búið í eigninni og er væntanlegum kaupanda bent á að skoða eignina vel.
- Hjóla- og vagnageymsla í sameign
- Auka c.a 6 fm sér geymsla í sameign.
- 2019 - 2020, þakið endurnýjað 
- 2021 - 2022, frárennsli endurnýjað frá húsi út í götu. 
- 2021 - 2022, Stéttar endurnýjaðar með hitalögn fyrir framan blokkina og norður að göngustíg Þingvallastrætis.
- Upprunalegt gler og gluggar. 

Nánari upplýsingar veita:
Sigurpáll á [email protected] eða í síma 696-1006.
Helgi Steinar á [email protected] eða í síma 666-0999.
Sibba á [email protected] eða í síma 864-0054.

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.