Hlíðarlundur 2 104, 600 Akureyri
52.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
95 m2
52.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1990
Brunabótamat
49.300.000
Fasteignamat
49.300.000

Kasa fasteignir 461-2010.

Hlíðarlundur 2 íbúð 104 - Vel skipulögð 95,7 fm 4 herbergja íbúð með sér inngangi á jarðhæð í norðurenda í fjölbýli á góðum stað á Brekkunni. 

** Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning **

Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, og þvottahús innan íbúðar ásamt verönd til vesturs og tæplega 20 fm sér geymslu í sameign.


Forstofa: Flísar á gólfum.
Gangur: Parket á gólfum.
Eldhús: Rúmgóð eldri innrétting með miklu skápa, skúffu og bekkjarplássi. Sambyggð eldavél og bakaraofn ásamt plássi fyrir ísskáp til hliðar við innréttingu. 
Stofa: Parket á gólfum, gengið er út á vestur verönd úr stofu.
Baðherbergi: Hvít innrétting með skúffum og efri skápum. Flísar á gólfum og í kringum sturtukelfa sem er með sturtugleri. Handklæðaofn og salerni. Opnanlegur gluggi er að baði. Baðherbergi var gert upp fyrir um 4 árum síðan.
Svefnherbergi: Eru þrjú innan eignar, tvö þeirra með fataskápum. Hjónaherbergið er með dúk á gólfi en barnaherbergin eru með parketi.
Þvottahús: Er flísalagt með hillum á veggjum.
Geymsla: Sér geymsla í sameign, þar er lakkað gólf og hillur á veggjum. Geymslan er um 19,3 fm að stærð og er ekki skráð í heildar fermetra eignar.

- Frábær staðsetning, rétt hjá leik- og grunnskóla.
- Tengi fyrir rafbíla. 
- Hiti í stéttum.
- Gott skipulag.
- Tvær stórar sameignargeymslur í kjallara.

Nánari upplýsingar veita:
Sigurpáll á [email protected] eða í síma 696-1006.
Helgi Steinar á [email protected] eða í síma 666-0999.
Sibba á [email protected] eða í síma 864-0054.

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.