Hringtún 19b , 620 Dalvík
71.500.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
3 herb.
130 m2
71.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2021
Brunabótamat
62.650.000
Fasteignamat
48.900.000

Kasa fasteignir 461-2010.

Hringtún 19B Dalvík - Bjart og fallegt nýlegt 3 herbergja 130 fm parhús með innbyggðum bílskúr og verönd á góðum stað á Dalvík. Íbúðarhlutinn er skráður 101,8 fm og bílskúrinn 28,2 fm.

Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi, þvottahús og bílskúr með geymslulofti ásamt verönd til vesturs.


Forstofa: Flísar á gólfum og góður hvítur fataskápur.
Stofa: Parket á gólfum, aukin lofthæð og innfelld lýsing. 
Eldhús: Er í opnu rými með stofu. Þar er hvít innrétting með góðu skúffu og skápa plássi. Í innréttingu er innbyggður ísskápur, uppþvottavél, bakara ofn og combi ofn. Í Eyju eru skúffur og helluborð. Út úr rýminu er rennihurð á steypta verönd þar sem lagnir eru fyrir heitan pott.
Baðherbergi: Er flísalagt að hluta. Hvít innrétting með skúffum og skápum. Innangeng sturta með sturtugleri. Vegghengt salerni og stór handglæðaofn. Hurð er út á verönd frá baðherbergi.
Hjónaherbergi: Er með stórum hvítum fataskáp og parketi á gólfi.
Barnaherbergi: Nokkuð rúmgott herbergi með stórum hvítum fataskáp.
Bílskúr: Er með rafdrifinni bílskúrshurð ásamt gönguhurð til hliðar. Steypt gólf en engin gólfefni. Geymslu hilla er yfir hluta bílskúrs.
Þvottahús: Er inn af bílskúr, þar er rúmgóð hvít innrétting með plássi fyrir þvottavél og þurrkara. Einnig er borðplata með vaski.

- Ljósleiðari kominn inn og tengdur.
- Langir fyrir heitan pott á verönd.
- Steypt bílaplan með snjóbræðslu.
- Gólfhiti í öllum rýmum.
- Innfeld lýsing í herbergjum og alrými.
- Varmaskiptir á vatni.

Nánari upplýsingar veita:
Sigurpáll á [email protected] eða í síma 696-1006.
Helgi Steinar á [email protected] eða í síma 666-0999.
Sibba á [email protected] eða í síma 864-0054.

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.