Kasa faseignir 461-2010. Oddeyrargata 16. Falleg 3 herbergja íbúð með sérinngangi í tvíbýlishúsi samtals 107,6 fm.Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, hol, ris, geymslu og sameiginlegt þvottahús í kjallara.
Forstofa er nokkuð rúmgóð, þar eru flísar á gólfi.
Eldhús er með skemmtilegri upprunalegri málaðri innréttingu, hvíttaðar gólffjalir á gólfi. Útgengt er úr eldhúsi á rúmgóðar svalir sem snúa í norður.
Stofa er mjög björt með stórum gluggum í suður og austur. Þar er parket á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö og bæði með dúk á gólfi.
Baðherbergi er með vínylparket á gólfi, baðkari, vask og wc. Veggir eru flísalagðir að hluta.
Hol er parketlagt, þaðan er gengið upp í ris.
Ris er rúmgott og liggur yfir allri íbúðinni, býður það uppá mikla möguleika.
Þvottahús er sameiginlegt með neðri hæð, þar er lakkað gólf, innaf þvottahúsi er lítil geymsla.
Sérgeymsla er í kjallara, þar er lakkað gólf og gluggi.
Annað:- Mjög góð staðsetning, miðbærinn, sundlaug Akureyrar og önnur þjónusta í göngufæri.
- Sér bílastæði fylgir eigninni.
- Sameiginlegur geymsluskúr er á lóðinni.
- Lóð hefur verið skipt í tvo afnotahluta.
Nánari upplýsingar veita:Sigurpáll á
[email protected] eða í síma 696-1006.
Helgi Steinar á
[email protected] eða í síma 666-0999.
Sibba á
[email protected] eða í síma 864-0054.