Kasa fasteignir 461-2010.
Víðilundur 24 íbúð 303. Falleg 79,8 fm. nokkuð endurnýjuð 3 herbergja íbúð á 3 hæð í fjöleignarhúsi fyrir 60 ára og eldri. Þjónustukjarni er við húsið þar sem allskyns afþreying er í boði. Eignin skiptist eftirfarandi.
Forstofa, gangur, stofa/borðstofa og eldhús eru í opnu rými, tvö svefnherbergi, baðherbergi, garðskáli er einangraður með ofni og er framlenging af stofunni. Sér geymsla á hæðinni sem og sameiginlegt þvottahús einnig á hæðinni, einnig er sér geymsla í kjallara.Forstofa: er með góðum fataskáp, flísar eru á gólfum.
Gangur: Er með parkei á gólfum.
Eldhús: Þar er hvít snyrtileg innrétting, flísar á milli skápa, nýlegt keramik helluborð. Parket á gólfum.
Stofa: Er með parketi á gólfi sem að hefur nýlega verið pússað upp, í framhaldi af stofu er sólskáli sem að hefur verið einangraður og þar er ofn
Gengið er út á svalir í suðvestur frá garðskála.
Svefnherbergi: Eru nokkuð rúmgóð bæði með skápum, parket á gólfum.
Baðherbergi: Var allt tekið í gegn, góð eikarinnrétting, flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni og sturta. Tengi er fyrir þvotavél á baðherbergi.
Geymslur: Eru tvær sem fylgja eigninni, önnur er á hæðinni en hin í kjallara.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni.
Annað:- Hansa hillur í íbúð fylgja ekki með við sölu.
- Baðherbergi var allt endurnýjað.
- Skipt var parket á íbúð þannig að parket er ekki upprunalegt.
- Skápum í herbergi færðir sem að gerir herbergin rúmbetri.
- Sólskáli einangraður og þar er ofn.
- Innangengt er í þjónustukjarna, hægt er að panta mat þangað.
- Snyrtileg sameign.
- Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni.
- Sér geymsla er á hæðinni og einnig í kjallara.
- Eldvarnarkerfi hússins endurnýjað 2020.
- Mynd dyrasími.
- Hitakapall í þakrennum
- Ljósleiðari komin í íbúð.
Nánari upplýsingar:Sigurpáll Árni á
[email protected] eða 696-1006.
Helgi Steinar á
[email protected] eða 666-0999.
Sigurbjörg á
[email protected] eða 864-0054