Kasa fasteignir 461-2010.
Höfðabyggð B19. Einstakt tækifæri. Sannkallaður sælureitur á einum besta stað í Lundsskógi. Um er að ræða bústaðinn sjálfan 84.3 fm, Gestahús 22.9 fm. og tækjahús 25 fm. samtals 132.2 fm. Stór sólpallur, heiturpottur og gufubað er á pallinum.
Um er að ræða vandað hús á einstökum stað. Húsið er endurnýjað að mjög miklu leyti 2020, hiti í gólf, allt sprautumálað inni og úti , innréttingar,raflagnefni, flísalagt ofl. ofl. Bílaplan er malbikað. Vandað innbú fylgir fyrir utan persónulega muni.
Húsið skiptist í: Stofu/eldhús í opnu rými/hol, gangur, tvö svefnherbergi baðherbergi, forstofu/þvottahús og háaloft.
Stofa/ Eldhús: Eru í opnu rými, bjart og rúmgott rými með parketi á gólfum, vönduð sprautulökkuð eldhúsinnrétting og falleg lýsing er í rýminu. Einnig er kamína í stofunni.
Baðherbergi: Mjög rúmgott rými flísalagt í hólf og gólf, sturta þar er tvöföld sturta. Góð innrétting. Salerni er í sér rými og er upphengt salerni og vaskur. Út frá baðherbregi er gengið beint út á verönd þar er bæði heitur pottur og gufuhús sem fellur skemmtilega inn í landslagið.
Gangur/hol: Þar er vandað parket á gólfum og þar er uppganga upp á háaloftið.
Svefnherbergi: Eru tvö og er ágætispláss fyrir tvíbreið rúm þar er parket á gólfum.
Forstofa/Þvottahús: þar er góð innrétting með þvottvél og þurrkara. Flísalagt gólf.
Gestahús:Fallega innréttað hús. Þar er vinylparket á gólfum. Aðalrýmið er bjart og rúmgott.
Nýlegt parket er á gólfum og húsið er smekklega innréttað.
Baðherbergi: Er með flísum á gólfum hluta veggja og í votrými, upphengt salerni og góð sturta.
Tækjageymsla:Vandað hús með stórri hurð einnig er gönguhurð ínn í tækjageymslu
Tækjageymslan er smíðuð í stíl í sumarhúsið og frágangur allur vandaður, flísalagt gólf.
Stór
sólpallur er við eignina og er þar heitur
pottur og
gufubað, gufubaðshúsið fellur velinn í landslagið. Grasflöt er norðan við aðal húsið.
- Akureyri 22km, Lundsvöllur 2km, Skógarböðin 21km
- Bílaplan er malbikað.
- Innanhús hönnun Ragna Sif.
- Tom Dixon ljós frá Lumex.
- Ljósleiðari.
- Hitaveita.
- Olíuborið parket.
- Allt innbú fylgir fyrir utan persónulega muni.
Nánari upplýsingar.
Sigurpáll Árni á
[email protected] eða 696-1006.
Helgi Steinar á
[email protected] eða 666-0999.
Sigurbjörg á
[email protected] eða 864-0054.