Kasa fasteignir - 461-2010Geirþrúðarhagi 2 íbúð 302, björt og falleg 74,4 fm 3 herbergja íbúð á þriðjuhæð ásamt stæði í bílakjallara í nýlegu fjölbýli í Hagahverfi.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í sama rými, gang, baðherbergi, þvottahús, hjónaherbergi og barnaherbergi.
Íbúðinni fylgir bílastæði í bílakjallara, sér geymsla í sameign og suðursvalir.
Íbúðin er skráð 68,1 fm og geymslan í kjallara er 6,3 fm.Forstofa: Komið er inn í flísalagða forstofu.
Gangur: Er parketlagður með ljósu parketi. Á gangi er stór fataskápur.
Eldhús: Er með ljósu parketi á gólfi. Innréttingar frá HTH, ljós eik neðri og hvítir efriskápar. Eldavél og bakaraofn frá AEG. Pláss fyrir uppþvottavél er í innréttingu.
Stofa: Er með ljósu parketi á gólfi, út úr stofu er gengið á svalir til suðurs.
Baðherbergi: Er með flísum á gólfi og hluta af veggjum. Innréttingin er ljós eik með góðu skápa og skúffuplássi. Borðplata með innfeldum vaski. Stór spegill með ljósum. Sturtuklefi með glerveggjum og vegghengt salerni.
Svefnherbergi: Eru tvö, bæði með ljósu parketi á gólfi. Bæði herbergi eru með rúmgóðum fataskápum.
Þvottahús: Er með plássi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Gott skúffu og skápapláss. Borðplata með vaski. Flísar á gólfi.
Annað:- Virkilega vönduð og falleg eign.
- Allar innréttingar og fataskápar eru frá HTH.
- Gólfhiti er í allri íbúðinni.
- Ljósleiðari kominn inn íbúð.
- Bílastæði í bílakjallara. Rafmagnslögn klár fyrir hleðslustöð við stæðið.
- Þvottaaðstaða með háþrýstidælu fyrir bíla í bílakjallara.
- Sameiginleg hjóla og vagna geymsla.
- Eignin er í einkasölu.
Nánari upplýsingar veita:Helgi Steinar á
[email protected] eða í síma
666-0999.
Sigurpáll á
[email protected] eða í síma
696-1006.
Sibba á
[email protected] eða í síma
864-0054.