Strandgata 11 201, 600 Akureyri
32.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
52 m2
32.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1906
Brunabótamat
24.650.000
Fasteignamat
29.700.000

Kasa fasteignir - 461-2010

Strandgata 11 íbúð 201. Björt 3 herbergja 52,8 fm íbúð í mikið endurnýjuðu húsi í miðbæ Akureyrar. Eignin hentar afar vel til útleigu í skammtímaleigu, öll húsgögn fylgja með við sölu.

Eignin skiptist í forstofu, stofu og eldhús í sama rými, baðherbergi og tvö svefnherbergi ásamt sameiginlegu þvottahús með annari íbúð á hæðinni og sameiginlegri geymsla undir stiga.


Forstofa, flísar á gólfi og opið fatahengi.
Stofa og eldhús eru saman í rými. Innrétting með efri og neðriskápum, ágætis skápapláss. Pláss fyrir ísskáp og örbylgju ofn í innréttingu. Nýlegt vínilparket á rýminu. Úr stofu er gengið á vestursvalir.
Baðherbergi Var gert upp árið 2013. Dökkar flísar á gólfi og hluta veggja. Sturta með glervegg, upphengt salerni og handklæðaofn.
Herbergi eru tvö. Bæði með parketi á gólfi og góður fataskápur í stærra herberginu.  Minna herbergið er skráð sem geymsla en nýtist sem svefnherbergi. 
Þvottahús er sameiginlegt með annari íbúð á hæðinni. Þar er gluggi og fellistigi upp á geymsluloft. 

Húsið var byggt árið 1906 en árið 2001 var það endurnýjað að mestu leyti, meðal annars var skipt um alla glugga og gler, frárennslislagnir endurnýjaðar, rafmagn endurnýjað og einangrun.

- Innbú fylgir.
- Eignin er laus við kaupsamning.
- Hentar mjög vel í skammtímaleigu.
- Staðsett í miðbæ Akureyrar.

Nánari upplýsingar veita:
Helgi Steinar á [email protected] eða í síma 666-0999.
Sigurpáll á [email protected] eða í síma 696-1006.
Sibba á [email protected] eða í síma 864-0054.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.