Lækjargata 4 , 600 Akureyri
Tilboð
Einbýli/ Einbýlishús á þremur hæðum
10 herb.
247 m2
Tilboð
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1870
Brunabótamat
69.800.000
Fasteignamat
57.750.000

Kasa Fasteignir 461-2010

Lækjargata 4 - Bjart og fallegt endurnýjað 10 herbergja, 247,7 fm einbýlishús í Innbænum á Akureyri. Húsið skiptist í tvær hæðir, ris og kjallara. Húsið hefur mikið verði endurnýjað s.s. raf- og vatnslagnir, gluggar, gler, þak, klæðning og einangrun, innréttingar og fleira. Eignin hefur verið í skammtímaleigu undanfarið og er vel búin húsbúnaði sem getur fylgt með við sölu.

Nánari lýsing: 
Kjallari:  Þvottahús og gott geymslupláss.
1. hæð:  Forstofa, eldhús, stofa, borðstofa og salerni.
2. hæð:  Baðherbergi, þrjú svefnherbergi og stofa.
Ris:  Stórt herbergi og baðherbergi.

Á gólfum hússins er að stærstum hluta hvíttaðar gólffjalir að votrýmum undanskildum en þar eru flísar.
Á 1. og 2. hæð eru gólfjalir nýjar en í risi eru gömlu gólffjalirnar málaðar.  Í kjallara eru máluð gólf. 

Baðherbergi í risi er með baðkari og sturtu og flísum á veggjum. Baðherbergi á 2. hæð er flísalagt og með sturtu.  Á jarðhæð er salerni.  Flísarnar eru fallegar með munstri og öll eru rýmin haganlega frágengin.
Eldhúsið er opið og bjart.  Þar er ljós innrétting og stór gluggi til norðurs og opið yfir í borðstofu.  Borðstofan tengist svo yfir í stofuna. 

Inngangur er til suðurs en mest er gengið inn um bakdyrainngang frá Spítalavegi.
Í risinu er stórt svefnherbergi hvar loftin eru tekin upp og gömlu bitarnir fá að njóta sín. 
Gluggi til austur er úr herberginu með fallegu útsýni út á pollinn.

Norðan við húsið er endurnýjuð verönd, og bílaplan með möl.
Falleg eign sem vert er að skoða

Nánari upplýsingar veita:
Sigurpáll á [email protected] eða í síma 696-1006.
Helgi Steinar á [email protected] eða í síma 666-0999.
Sibba á [email protected] eða í síma 864-0054.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.