Kasa Fasteignnir - 461 2010
Hjallatún 11 206 - Björt og falleg 3 herbergja 100 fm íbúð á efri hæð með svölum til vesturs og rúmgóðum sólpalli við inngang.Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, tvö svefnherbergi, geymslu og þvottahús ásamt vestur svölum. Forstofa: Ljósar flísar á gólfi, stór rúmgóður skápur úr spónlagðri eik.
Eldhús/borðstofa: Eldhúsinnrétting er úr spónglagðri eik og hvít. Ljósar borðplötur. Ofn, eldavél og vifta af gerðinni Electrolux. Mjög rúmgott rými, útgengt úr á vestur svalir. Pláss fyrir tvöfaldann ísskáp í innréttingu. Ísskápur og uppþvottavél fylgja með við sölu.
Stofa: Mjög rúmgóð og björt stofa með harðparketi á gólfi. Stór gólfsíður gluggi.
Baðherbergi: Baðinnrétting er úr spónlagðri eik með speglum og ljósum. Baðherbergi er flísalagt að hluta, vegghengt salerni, innangeng sturta með sturtu gleri.
Herbergi: Svefnherbergin eru tvö, bæði með stórum skápum og harðparketi á gólfi.
Þvottahús: Er með flísum á gólfi og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Borðplata með vaski.
Geymsla: Rúmgóð með harðparketi á gólfi og stórum glugga.
Annað:
- Hiti í gólfum.
- Ísskápur og uppþvottavél fylgja við sölu.
- Mjög góð staðsetning stutt í leik- og grunnskóla
- Steyptar svalir og stór sólpallur.
- Hluti af bílaplani og sólpalli með snjóbræðslu.
- Ljósleiðari komin inn.
- Eignin getur verið laus fljótlega.
- Eignin er í einkasölu.
Nánari upplýsingar veita:Sigurpáll á
[email protected] eða í síma 696-1006.
Helgi Steinar á
[email protected] eða í síma 666-0999.
Sibba á
[email protected] eða í síma 864-0054.